156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

þingfundur á sunnudegi.

[13:06]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Virðulegi forseti. Hér hafa stjórnarandstöðuþingmenn komið upp og talað um að hér þurfi að skapast fordæmalausar aðstæður til þess að það sé hægt að funda á sunnudögum. Ég sé ekki betur en að það séu einmitt slíkar aðstæður uppi, sérstaklega í ljósi þess að hér var slegið Íslandsmet í 1. umræðu um veiðigjöld, það fóru sex klukkutímar í fríverslunarsamning milli Íslands og Taílands, og sérstaklega í ljósi þess að málflutningur stjórnarandstöðuþingmanna hefur verið á þann veg að þetta sé aðeins smjörþefurinn af því sem koma skal. Það hefur komið fram margoft í ræðum þeirra, í tafaleikjum og málþófi sem við höfum orðið vitni að síðustu vikur og nætur. Það er auðvitað fullt tilefni til að funda hér á sunnudögum og ég styð forseta heils hugar í þessari ákvörðun að funda á sunnudegi.