þingfundur á sunnudegi.
Frú forseti. Ég vildi koma hingað upp sérstaklega og hrósa fyrir góða fundarstjórn. Ég verð að viðurkenna að mig rak í rogastans þegar ég heyrði að við værum að funda á sunnudegi á Alþingi í annað skipti í sögu lýðveldisins. Íslendingar eru vinnusöm þjóð og þegar verkefnin liggja þannig vinnum við auðvitað á sunnudögum eins og aðra daga. Mér finnst það ekki bara sjálfsagt og eðlilegt, mér finnst það gott og ég fagna því að við séum að vinna þennan sunnudag. Ég er sjálf að koma úr matvöruverslun. Þar er fólk í vinnunni sinni, vinnur sinn dag vegna þess að verkefnin krefjast þess. Stjórnarandstaðan og sérstaklega Miðflokkurinn hafa lýst því yfir oft og rækilega, endurtekið og síendurtekið, að þau vilji ræða bókun 35. Mér hefur fundist þetta á köflum ágæt umræða, endurtekningar þurfa ekkert endilega að vera verri þó að það séu endurtekningar. Ég er mjög ánægð með það að við séum að funda hér og ég vona að umræðan í dag verði frjósöm og fari að leiða Miðflokkinn áfram um að fara að ljúka þessu máli. — Góð fundarstjórn, frú forseti. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)