156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

þingfundur á sunnudegi.

[13:08]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Hér er í rauninni tvennt til umræðu, annars vegar hvernig málinu lyktar sem er á dagskrá á eftir og hins vegar það að hér sé boðað til fundar í skjóli nætur á sunnudegi án nokkurs samráðs við þingflokksformenn eða annað. Mig langar bara að fá að nota tækifærið, virðulegur forseti, og vitna í stórvin minn og fyrrverandi hæstv. ráðherra, Össur Skarphéðinsson:

„Það sem ég velti fyrir mér er þetta sérkennilega augnablik í þingsögunni. Þetta er í fyrsta skipti sem Alþingi er kvatt saman á sunnudegi. Það hefur aldrei gerst á lýðveldistímanum fyrr. Það hlýtur að vera eitthvað mjög mikilvægt.“

„Hins vegar er algjörlega nauðsynlegt að menn hafi á hreinu að það var nauðsynlegt að kalla þingið saman í fyrsta skipti í lýðveldissögunni á sunnudagskvöldi vegna þess að ríkisstjórnin heldur ekki upplýsingum.“

Hér er um að ræða tíma þar sem umræða þurfti að standa yfir um losun fjármagnshafta. Það er ekkert í því máli sem er á dagskrá í dag sem kallar á að það þurfi að boða hér fund eftir miðnætti án nokkurs samtals og án nokkurrar virðingar fyrir því hver þingsköp eru og hefðir. (Forseti hringir.) Ég bið þig, virðulegur forseti, að endurskoða þessa ákvörðun þína.