þingfundur á sunnudegi.
Virðulegur forseti. Ábyrgðin er mikil á þeim skrefum sem þú stígur hér í dag í þingsögunni, fordæmi sem er verið að gefa inn í framtíðina. Þetta hefur verið til algerra undantekninga og í öllum þeim tilfellum sem haldnir hafa verið fundir á sunnudegi var það gert í samráði milli flokka. Það er gert af brýnum tilefnum, brýnum verkefnum sem varða þjóðarhag og í algerri samstöðu á milli flokka. Hér er verið að sýna valdboð sem er áður óþekkt í þingsögunni, fordæmi sem meiri hlutinn vill gefa, fordæmi sem ríkisstjórnin leggur upp með og hæstv. forseti ber ábyrgð á að efna og setur þannig fordæmi inn í framtíðina. Þetta á sér vart fordæmi nema, eins og ég segi, í málum sem hafa skipt miklu máli. Við til að mynda héldum aldrei sunnudagsfundi í heimsfaraldri, ekki í fjármálahruni o.s.frv. Það kom oft til umræðu en menn töldu það ekki koma til greina nema málefni væru brýn, virðulegur forseti.