þingfundur á sunnudegi.
Frú forseti. Mér finnst rétt að byrja á því að hrósa hæstv. forseta því að hún hefur sýnt hér minni hlutanum sanngirni, hún hefur komið til móts við sjónarmið minni hlutans og stjórnað þessum fundum af ágæti og festu. En það er auðvitað búið að fylla alla mæla hér og mér finnst undarlegt að flokkar sem kenna sig við borgaraleg gildi skuli koma hingað upp og telja að það eigi ekki að bregðast við því þegar menn halda þinginu í gíslingu með málþófi. Málið er að þetta mál hefur ekki komið hingað inn vegna þess að það er búið að halda ræðustólnum í gíslingu við 1. umræðu svo tímunum og dögum skiptir og jafnvel sett Íslandsmet. Ég skora á hv. stjórnarandstöðuþingmenn að sýna hæstv. forseta kurteisi og sanngirni í þeim ræðum sem þeir flytja hér.