156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

þingfundur á sunnudegi.

[13:18]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Við vitum að það bíða mörg mál óafgreidd. Það blasir við að hér hefur verið í gangi málþóf en það er auðvitað bara eins og það er og það gerist. Menn verða bara að geta horfst í augu við það að það er veruleiki málsins; hér er í gangi málþóf. Mér finnst með nokkrum ólíkindum við þær aðstæður að hér komi upp hv. þingmenn, ég nefni sem dæmi Bryndísi Haraldsdóttur sem segist vera sorgmædd á sunnudegi (Gripið fram í.) vegna þess að hún er í vinnu (Gripið fram í.) — málþóf, það er málþóf í gangi hér í þessum sal (Forseti hringir.) og hefur verið dögum saman. Það er málþóf í gangi. Ég fagna því þess vegna, því að þingmönnum liggur margt á hjarta og við heyrum það og skynjum, að þeir fái að tala á sunnudegi eins og aðra daga. Við ættum öll að gleðjast yfir því. Þingmönnum liggur margt á hjarta, mikið á hjarta. Þeir hafa margt að segja. Þeir hafa verið að segja sömu hlutina, oft, aftur og aftur, og ég er ánægð og þakklát fyrir það að við séum með forseta á Alþingi sem boðar þá til fundar á sunnudegi og leyfir okkur þingmönnum að tala um þetta mál. Vonandi komumst við í það að fara að ræða önnur mál sem þjóðin er að kalla eftir, því að þau bíða. Það er afleiðing málþófs.