þingfundur á sunnudegi.
Virðulegi forseti. Já, ég tel að það sé full ástæða til að hrósa hæstv. forseta fyrir sína fundarstjórn og þann sveigjanleika sem hún er búin að sýna þeim sem vilja ræða þessi mál í þaula með miklum endurtekningum og öðru slíku. Hún er búin að leyfa þeim að vera hérna fram á nætur og hún er að gefa sunnudag undir það. Það finnst mér bara virkilega vel gert af henni. Ég furða mig líka á þessari viðkvæmni gagnvart orðinu málþóf. Þetta er svona svolítið að ef það kvakar eins og önd og vaggar eins og önd og syndir eins og önd þá er það væntanlega önd og við vitum öll að þetta er málþóf. Ég veit ekki hvað það er ef ekki það þannig að við skulum bara kalla þetta sínum réttu nöfnum.
Varðandi það að vinna á sunnudegi langar mig að taka undir orð hv. þm. Ragnars Þórs Ingólfssonar: Erum við ekki öll hérna að nýta okkur þjónustu á sunnudögum, þar sem verslanir eða hvað sem er er opið á sunnudögum? Hverjir gera það ekki í þessum sal? Við þurfum kannski bara að fara að breyta vinnulöggjöfinni og banna vinnu á sunnudögum ef þingmenn eru alveg að missa sig yfir því að þurfa að mæta hérna einn sunnudag á lýðveldistímanum.