156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

þingfundur á sunnudegi.

[13:24]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Þetta var ágætisbrýning frá kollega mínum og hv. þm. Degi B. Eggertssyni og eins og hv. þm. Jón Gunnarsson hefur bent á er ábyrgðin mikil. Ábyrgð þeirra sem fara með dagskrárvald, ábyrgð þeirra sem fara með valdið og hvernig þeir fara með valdið er mikil. Það skiptir máli hvernig við tölum hér hvert við annað. Það skiptir máli hvernig við mætum hér til starfa. Það skiptir máli að við séum heil í okkar orðum. Það skiptir máli og það gefur tóninn og setur tóninn inn í þessi þingstörf. Það hvernig þessi meiri hluti hefur hagað sér hér í sínum þingstörfum er ekki til þess fallið að leysa greiðlega úr þeim hnúti sem greinilega er kominn upp og er ekki einsdæmi í Íslandssögunni, sannarlega ekki.