156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

þingfundur á sunnudegi.

[13:25]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Þurfum við ekki aðeins að gera eins og hæstv. forseti sagði hér einhvern tímann í húmi nætur í vikunni sem nú er liðin: Nú þurfum við að anda í kviðinn. (Gripið fram í: Við erum alveg pollróleg. )Ég ætla að segja það við þennan ágæta sal sem er kominn hér að vinna á sunnudegi, eins og svo margir í okkar samfélagi, að við eigum það algerlega undir átta þingmönnum Miðflokksins að binda endi á þessa umræðu sem er hér í dag um bókun 35. Þegar þeirri umræðu er lokið þá getum við öll haldið heim. Þess vegna vil ég taka undir gott tilboð hv. þm. Pawels Bartoszeks um það að hann flytji ræðu og hér verði hægt að fara í andsvör. Ég get meira að segja boðið betur og sagt sem fulltrúi Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd að ég er tilbúin til að leggja mitt af mörkum í þeim efnum og halda hér ræðu einnig. En ég bið ykkur, ég bið hv. þingheim um að láta ekki eins og þetta sé ekki heimatilbúinn vandi sem er í boði stjórnarandstöðunnar sem hefur stundað tafaleiki í margar, margar vikur. (Forseti hringir.) Ábyrgð stjórnarmeirihlutans er mikil en það gengur svo sannarlega líka yfir minni hlutann.