156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

þingfundur á sunnudegi.

[13:26]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Þetta er sannarlega heimatilbúinn vandi hjá ríkisstjórn sem er búin að koma sér í slík vandræði að hún grípur til örþrifaráða. Eins og fleiri hv. þingmenn hafa nefnt hér áður er þetta sögulegur dagur á Alþingi því að fram að þessu hefur aldrei verið gripið til þess að halda þingfund á sunnudegi í ósætti. Mig rekur minni til þess að hafa eitt sinn verið spurður af þáverandi forsætisráðherra hvort ég gæti fallist á sunnudagsfund. Það kom ekki til þess þá enda taldi meira að segja sá forsætisráðherra að ef mætti komast hjá því að funda á sunnudegi væri tilefni til þess.

Hér heyrum við þetta hefðbundna tal um að menn nenni ekki að vinna, frá fólki sem er búið að vera í sólbaði síðastliðna daga á meðan hv. þingmenn Miðflokksins hafa verið að verja fullveldi landsins hér í sölum Alþingis. Það er á vissan hátt heiður að fá að gera það á sunnudegi, fyrir 17. júní, en það er ekki góður bragur á því að ríkisstjórn skuli leggja svo mikla áherslu á að gefa eftir af fullveldi landsins að hún haldi slíkan fund á sunnudegi fyrir 17. júní.