þingfundur á sunnudegi.
Virðulegi forseti. Það hefur enginn kvartað undan því að vinna á sunnudegi. (Gripið fram í.)Ég held að flestir þingmenn, alla vega hvað mig varðar hef ég alltaf unnið alla sunnudaga frá því ég varð þingmaður. Í dag ætlaði ég t.d. sem meðlimur í Þingvallanefnd að skunda á Þingvöll í tilefni af þjóðhátíðardeginum. Það er dagskrá þar í dag og mörg önnur þingstörf. Þetta snýst um ástæðuna fyrir því að það sé þingfundur á sunnudegi, ekki hvort við séum að vinna á sunnudegi eða ekki. Ástæðan fyrir þessum þingfundi er sú að hæstv. ríkisstjórn og þeirra fólk ákvað að geyma mál sem allir vissu sem fylgjast með pólitík að yrði mikil umræða um. Allir vissu það en þau ákváðu að setja það á dagskrá hér rétt fyrir þinglok eftir að það var búið að liggja óhreyft í tvo mánuði. Það er ástæðan fyrir því að við erum hér. Þetta er heimatilbúinn vandi stjórnarflokkanna, algerlega. Ég veit ekki hver neyðin er til að funda á sunnudegi af því að ég veit ekki til þess að þjóðin sé að bíða eftir að þetta þing klári eitt einasta mál, hvorki bókun 35, víxlverkun, veiðigjöld né kílómetragjald. Það er enginn að bíða eftir því að þessi ríkisstjórn nái sínum málum fram.