156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

þingfundur á sunnudegi.

[13:31]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Við þetta tækifæri er ágætt að rifja það upp og nefna það að ungir jafnaðarmenn, Samfylkingarmenn, halda árlega upp á einhverja merkilegustu málþófsræðu sem flutt hefur verið á lýðveldi Íslands. Það er málþófsræða Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún er lesin í heild sinni upp til að heilla minningu málþófs Samfylkingarinnar. Hún er ígildi, framreiknuð, 146 5 mínútna ræðum, þessi eina ræða þessa eina þingmanns. Mikið óskaplega eru þið hörundsár.

Svo langar mig að segja líka að við erum ekkert komin hér í dag til að ræða hvort það sé eðlilegt að vinna á sunnudegi. Við erum að tala um hvort það sé eðlilegt að það sé þingfundur á sunnudegi, það er sitthvor hluturinn. Og ekki erum við hér til að ræða hvað hv. þm. Degi B. Eggertssyni þykir skrýtið því að ekki gæti mér verið meira sama. Svo kemur hæstv. ráðherra og gerir því skóna að dagskrárvaldið liggi ekki hjá meiri hlutanum. Hér er verið að skrifa söguna, framhaldssögu. Við hófum skriftirnar í gær og í nótt og nú er framhaldið skrifað.