156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

þingfundur á sunnudegi.

[13:38]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Við stefnum að líkindum inn í heldur sérstakan þingfund. Ég vil biðjast undan því að vera brigslað um að nenna ekki að mæta til vinnu. Ég hafði reyndar sjálfur áformað að þessi dagur færi í að skrifa nefndarálit vegna veiðigjalda sem verða væntanlega rædd hér á morgun við 2. umræðu eftir að málið var tekið út úr hv. atvinnuveganefnd í gær. En við sem hér erum hljótum í ljósi þess hvar við erum og hvað við gerum að bera töluvert mikla virðingu fyrir venjum og hefðum. Þessi fundarboðun í dag vegna máls sem hefur beðið í rúma þrjá áratugi getur ekki í neinu samhengi kallað fram slík viðbrögð að hér sé boðað til fundar á sunnudegi, ef ég skil rétt, í annað skipti í lýðveldissögunni, annað skiptið síðan 1944. Er þetta ekki meira að draga fram þá mynd að skipulagsleysi ríkisstjórnarinnar hefur sett mál á þennan stað sem kallar á þessi viðbrögð? En það getur ekki verið hlutverk forseta sem lendir í þessari stöðu að vinda ofan af slælegu verklagi ríkisstjórnarinnar á fyrri stigum sem skapar þessi þrengsli í tíma.