þingfundur á sunnudegi.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka og hrósa frú forseta fyrir skýra og styrka fundarstjórn. Mér finnst hv. þingmönnum Miðflokks sómi sýndur og virðing með því að gefa þeim færi á að tjá sig hér í dag. Ég vil þó gera athugasemd við skilvirkni þingmanna við að koma skoðunum sínum á framfæri. Það hlýtur að vera hægt að gera í færri en 40 ræðum eða svo. Ég var áður forstjóri í ríkisstofnun og við fengum reglulega skilaboð frá Alþingi um meira aðhald og skilvirkni og mér finnst mikilvægt að hv. Alþingi gangi á undan með góðu fordæmi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)