þingfundur á sunnudegi.
Frú forseti. Ég vil taka undir með hæstv. heilbrigðisráðherra, Ölmu D. Möller, um það að þingmönnum Miðflokksins er sýndur mikill sómi og virðing með því að fá að ræða þetta mál hér á sunnudegi. Það er einfaldlega staðan og hv. þingmenn, þessir átta þingmenn þessa eina flokks sem heldur uppi þessum ræðum hér með endurtekningu, verða að gera það upp við sig hvort þeir vilja ræða þetta mál eða ekki. Það er verið að veita þeim svigrúm og pláss á dagskrá Alþingis með því að veita þeim þennan vettvang hér í dag. Við höfum hlýtt á þessar ræður. Við höfum gefið okkur að þeim. Mér finnst ástæða til þess að ítreka boð formanns utanríkismálanefndar, hv. þm. Pawels Bartoszeks, um það að hér verði dregin lína í sandinn, hér verði fluttar ræður, hér verði farið í andsvör og við klárum þetta mál og höldum áfram með önnur þjóðþrifamál. Eða er það kannski eitthvað sem er þingheimi á móti skapi vegna þess að það er hreinlega lýðræðislegur vilji þjóðarinnar að veita þessari ríkisstjórn það umboð sem hún var kosin til að fara með?