þingfundur á sunnudegi.
Frú forseti. Ég held að allir þingmenn starfi á sunnudögum í sinni vinnu. Það sem við erum að tala um eru þingfundir. Það hefur ekki tíðkast, eins og margoft hefur komið fram hér í ræðustólnum, að halda fundi á sunnudögum nema þjóðarvá sé undir. Það sem ég sakna kannski helst í umræðunni núna er að það er kristinn siður að taka hvíldardaginn heilagan. Það er kannski merki sem vert er að taka eftir að ríkisstjórn undir forystu Samfylkingarinnar skyldi brjóta þessa hefð, skyldi brjóta þessa kristnu hefð að taka hvíldardaginn heilagan. Við fáum kannski að fylgjast með því þegar kirkjuklukkur hringja hér inn til messu í næsta húsi eða í nágrenninu og það er merki um það stílbrot sem hér er í gangi.