þingfundur á sunnudegi.
Frú forseti. Í ljósi m.a. fundahalda á Þingvöllum nú um stundir vil ég bara hvetja virðulegan forseta til að leita allra leiða til þess að við, þingið í heild og forseti, forseti auðvitað alls þingsins, gerum það sem hægt er til að ásjóna og hefðir, hefðir sem eru til staðar af ástæðu, að það verði litið til þeirra með virðingu og ekki, til að sýna sérstaka stjórn á stöðu sem að hluta til virðist undir hóflegri stjórn ríkisstjórnarinnar, rekin hornin í það sem hefur virkað vel um langa hríð. Ég bara hvet virðulegan forseta til að hafa það í huga í gegnum þennan dag sem við eigum hérna og vona að hann verði okkur öllum sem bærilegastur.