Evrópska efnahagssvæðið.
Forseti. Við höfum komið inn á, við þingmenn Miðflokksins, að þetta sé yfirlæti og ég held að það sjáist vel í dag, yfirlæti þessarar ríkisstjórnar eða einhvers konar skortur á afsökunum fyrir því af hverju þau eru hérna í dag, að hér komi fólk og bendi okkur á það að fólk vinni á sunnudögum í búðum. Ég held að það liggi öllum ljóst fyrir. Við erum að tala um það að hv. þingmenn voru sennilega allir búnir að plana að vinna í dag en að þá sé hér þingfundur sem er nánast aldrei á sunnudögum. Ég vil líka benda á það að ef hér á að vera þingfundur — hvar liggja mörkin? Er líka þingfundur 17. júní? Einnig vil ég spyrja: Ef þessir hv. þingmenn og ráðherrar líta svo á að það sé bara hægt að vinna ef við erum hér í pontu, eru þeir þá í fríi meira og minna alla daga? Við sjáum ekki hæstv. ráðherra mikið hér í pontu.