156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:15]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp aftur vegna þess að mér finnst ástæða til að halda því til haga hversu ánægð ég er með þennan sunnudagsfund og fundarstjórn forseta. Mér finnst þetta ekki bara eðlilegt og nauðsynlegt viðbragð við því ástandi sem hefur verið hér inni í þingsal heldur beinlínis heilbrigt, gott og æskilegt að við fundum á sunnudögum þegar svona stendur á. Við vitum það að þingsins bíður afgreiðsla margra mikilvægra mála. Þau hafa tafist vegna kraftmikillar umræðu Miðflokksmanna hér inni í þingsal. Þá er auðvitað eðlilegt viðbragð við því að við liðkum fyrir með því einfaldlega að mæta til vinnu hér inni í þingsal, sunnudag sem aðra daga, kvölds eins og við vinnum hérna yfir daginn. Verkefnin kalla á það og mér finnst að menn geti ekki bæði talað um það að þeir fái ekki að ræða málin nægilega mikið og kveina svo yfir því þegar við höldum þingfund til að mæta þessum óskum og þessum kröfum.

Ég lýsi yfir stuðningi og hrifningu og minni á það að alþingismenn eru ekki of góðir til að mæta til vinnu á sunnudögum. Íslendingar eru vinnusöm þjóð.