156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:16]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Sú var tíðin að hæstv. dómsmálaráðherra var áður — og það eru ekki mörg ár síðan — kirkjumálaráðherra einnig. (dómsmrh.: Það er ég enn.) Það var í nafninu. Hér stendur dómsmálaráðherra. Það eru ekki mörg ár síðan hann var nefndur dóms- og kirkjumálaráðherra. Í dag er sunnudagur, hvíldardagur kristinna manna. Konstantínus keisari gaf út fyrirmæli árið 321 um að sunnudagurinn ætti að vera hvíldardagur. Hæstv. dómsmálaráðherra, sem segist enn vera kirkjumálaráðherra, lýsir því yfir hversu ánægð hún sé með fund hér á sunnudegi á Alþingi. Kirkjur hringja til messu í nágrenninu og kirkjumálaráðherrann, sem segist vera það, hæstv., lýsir yfir ánægju með að þjóðþingið fundi sem yfirleitt fundar aldrei á sunnudögum nema þjóðarvá sé undir. Hvert er þessi ríkisstjórn komin? Eru siðaskipti hin nýrri komin hér í þingsal?