156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:19]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Heilbrigt, gott og æskilegt, segir hæstv. dómsmálaráðherra, að við verjum sunnudeginum á þessum þingfundi til að ræða mikilvæg mál. Sitt sýnist hverjum um það hver séu mikilvægustu málin sem við þurfum að afgreiða á þessu þingi. Ég hef lýst því hér áður að mér þykir með hæsta móti undarlegt hvaða mál eru sett eða hvaða mál er sett hér á dagskrá og sett í forgang, eins og hefur verið bent á. Löngu afgreitt úr nefnd. Það eru önnur stór mál sem bíða hér umræðu og afgreiðslu og væntanlega þarf að taka langan og góðan tíma í þau í þessum þingsal þannig að ég furða mig á þessum vinnubrögðum, að þetta mál hafi yfirhöfuð verið sett á dagskrá, sem hefur haldið okkur uppteknum hér síðustu daga og endurtek það hér.