Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Hæstv. dómsmálaráðherra stígur hér í pontu og beitir stílbragði sem oftast er kallað háð. Það er allt í lagi. Við erum ekkert viðkvæm fyrir háði en hæstv. dómsmálaráðherra gerir því líka skóna að mikilvæg mál séu fram undan og ég er sammála henni um það. En hún gerir því líka skóna að þau komist ekki á dagskrá vegna Miðflokksins. Það er það sem má lesa út úr því sem hún sagði. Má ég, herra forseti, minna hæstv. dómsmálaráðherra á það hver er með dagskrárvaldið í þessum sal, hver það er sem er að taka ákvörðun um það að mikilvæg mál komist ekki á dagskrá? Það er ekki Miðflokkurinn, hæstv. ráðherra. Miðflokkurinn er ekki með dagskrárvaldið hér.