Evrópska efnahagssvæðið.
Forseti. Ég held að það þurfi bara að minna þingheim enn einu sinni á það að hæstv. forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, sagði í viðtali fyrir mörgum mánuðum að bókun 35 þyrfti mikla umræðu. Það var þessi ríkisstjórn sem ákvað að taka málið út í apríl og setja það svo ekki á dagskrá fyrr en nokkrum dögum fyrir þinglok. Svo vil ég líka benda á það að hér höfum við sett Íslandsmet í 1. umræðu, enda held ég að ekki nokkurri annarri ríkisstjórn hefði dottið í hug að leggja fram frumvarp sem er svo illa unnið að það er alveg sama hvar litið er niður, það stenst ekkert í því nokkra skoðun. Þau ætla ekki bara að laga veiðigjöldin, það eru allir tilbúnir að skoða það, nei, þau ætla að umturna kerfinu. Þau ætla að umturna lífeyrissjóðskerfinu, þau ætla að umturna öllum grunnum hér inni og kvarta svo yfir að það sé rætt. Og á þessum degi sem var svo mikilvægt að halda fund — lítið á bekkinn. Það er ekki neinn ráðherra hérna megin.