Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Skildi ég hæstv. dómsmálaráðherra rétt, að það sé bara af því að það er þingfundur í dag sem hæstv. ráðherra sé mætt í vinnuna, annars hefði hún haldið hvíldardaginn heilagan? Er eina ástæðan fyrir því að hún sé að vinna í dag að það er þingfundur? Var ekkert annað sem var mikilvægt í virðulegu embætti hæstv. dómsmálaráðherra?
Það sem ég vildi líka spyrja virðulegan forseta að er hvort það séu einhverjar fleiri hefðir sem standi til að afnema hér og reglur, t.d. hvort það hafi verið kannað í hv. forsætisnefnd hvernig þetta þing byrjaði, þegar þingmálaskrá var birt á undan stefnuræðu og stefnuræðunni breytt áður en hún var flutt. Það er bara byrjunin. Svo gæti ég haldið margar ræður hér til þess að halda áfram að ræða þar sem hefur verið farið út fyrir þingsköpin og hefðir og venjur hér í þjóðþinginu.