156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:24]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Nú, hæstv. dómsmálaráðherra er farin úr salnum. Vald er vandmeðfarið. Sumum fer greinilega ekki vel að fara með vald. — Jú, hún er komin aftur í dyragættina. Mig langar að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvort hún haldi að þessi innlegg sem hún er að flytja hér í dag séu hjálpleg. Heldur þú að þau liðki fyrir þinglokum? Heldur þú að þetta sé hjálplegt og liðki fyrir þinglokum? Af hverju kemur þetta mál svona seint inn í þingið? Það var tekið með látum út úr nefnd fyrir tveimur mánuðum. Það er sett á dagskrá rétt fyrir þinglok. Það var vitað að þetta tæki langan tíma. Ein enn spurning: Er hæstv. dómsmálaráðherra komin hér til þess að biðjast afsökunar t.d. á orðum sínum hér í síðustu viku þar sem hún skammaðist í þingmanni fyrir að spyrja spurninga, hv. þm. Ingibjörgu Isaksen? Er hæstv. dómsmálaráðherra komin hér til að biðjast afsökunar á orðum sínum í hennar garð?

(Forseti (GrímG): Forseti minnir hv. þingmenn á að ávarpa forseta en tala ekki við hv. þingmenn úti í sal.)