Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég ítreka það sem ég tel mikilvægt að segja í þessum mikilvæga, virðingarverða sal. Það þarf aðeins að núllstilla þetta andrúmsloft sem er komið upp hér. Það er málefnalegt tilboð á borðinu um þessa umræðu um þetta mikilvæga mál sem hefur fengið rúman tíma í þingsal og við fulltrúar í utanríkismálanefnd höfum setið hér tímunum saman og hlýtt á málflutning Miðflokksins. Það er komið tilboð um að við drögum línuna í sandinn í þessu máli. Ég hvet þingflokk Miðflokksins til að íhuga það tilboð vandlega. Það er gott. Það er ekki rétti tíminn til þess að vera með einhverja þrákelkni núna, hvorki frá stjórnarandstöðu né stjórnarmeirihluta. Vil ég þó ítreka það að mér hefur fundist fundarstjórn hér vera til fyrirmyndar. (Forseti hringir.) En þingmenn Miðflokksins verða að fara að gera það upp við sig hvort þeir vilji tala um þetta mál eða ekki.