156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:29]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir hefur sagt að það sé lýðræðislegur vilji þjóðarinnar að þessu máli sé lokið og að við eigum það eingöngu undir átta þingmönnum Miðflokksins að það haldi hér áfram. Þetta er auðvitað takmörkun á lýðræði sem verið er að tala hér fyrir. Það er verið að tala um ólýðræðisleg vinnubrögð. Lýðræði getur aldrei fengist með ólýðræðislegum vinnubrögðum eins og við höfum orðið svo mikið vitni að í þingstörfum; í þessu tilfelli núna og í nefndum þar sem við höfum ekki fengið gesti, mikilvæga gesti, stofnanir ríkisins, lykilstofnanir í málum. Þeim er hafnað. Af hverju? Ég veit það ekki, þetta hefur aldrei gerst áður, óþekkt. Þetta eru ólýðræðisleg vinnubrögð. Svo kemur þingflokksformaður Samfylkingarinnar og talar um okkur í minni hlutanum sem hefðarketti og uppnefnir. Hann er sá sem hefur ítrekað sýnt tilburði í þá átt í sinni orðræðu að stimpla það inn: Ég á þetta, ég má þetta. (Forseti hringir.) Er það þannig sem lýðræðið endurspeglast hjá stjórnarflokkunum?