Evrópska efnahagssvæðið.
Forseti. Það er búið að vera mjög áhugavert að fylgjast með umræðunni hérna í dag. Ég er nú ein af þessum nýju þingmönnum og ég er auðvitað að reyna að lesa í allar óskráðu reglurnar, venjurnar, hefðirnar og siðina. Þetta er mikið að taka inn. Ég sé að við erum að stíga á margar óskrifaðar línur og við sjáum ekki alveg hvað er rétt að gera. Það var þingmaður stjórnarandstöðunnar í síðustu viku sem bauð okkur á nýliðanámskeið. Gott og vel. Það getur verið margt sem maður þarf að læra. En ég velti nú fyrir mér í þessu hvort við ættum kannski öll, bara sem hópefli, að fara saman á tímastjórnunarnámskeið. Ég held að við hefðum öll svolítið gaman af því, við gætum bara setið þar saman og farið yfir hvernig væri best að fara með tímann. Ég hef líka séð að í umræðu um bókun 35 hafa mál efnahags- og viðskiptanefndar mjög gjarnan verið til umræðu; kílómetragjaldið, CRR III og fleira og lengi mætti telja. Á ég þá að gera ráð fyrir því að umræða um þau mál verði þá kannski styttri þegar þau loksins koma á dagskrá? En ég held að það væri gott fyrir þingmenn að gera eitthvað meira saman og tímastjórnunarnámskeið gæti verið bara frábært hópefli fyrir þennan frábæra hóp. (Forseti hringir.) Það er virkilega gaman að vinna hérna, líka á sunnudögum. Ég efast ekkert um vilja þingmanna til að vinna á sunnudögum. Það hef ég heyrt í öllum ræðum dagsins.