Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Nú er klukkan að verða hálfþrjú á sunnudagsfundi sem boðað var til án í rauninni nokkurra fordæma. Það eru örfá fordæmi um fundi á sunnudögum og þá þegar mikið liggur undir. Ég held að það sé ekki enn þá búið að flytja eina ræðu um bókun 35 sem er á dagskrá. Er það ekki rétt hjá mér, virðulegur forseti? Það hefðu allir getað sagt sér að þetta yrði nákvæmlega það sem myndi gerast, nákvæmlega það sem myndi gerast.
Virðulegur forseti. Ef við ætlum að bera einhverja virðingu fyrir þessum þingsal og þessum störfum sem hér eru, þurfum við þá ekki að breyta um takt? Þessi ákvörðun að boða til þingfundar í dag var vond ákvörðun. Er ekki skynsamlegra núna að slíta þessum fundi og að þingflokksformenn og forseti og jafnvel formenn flokkanna setjist niður og finni einhverja lausn á þeim hnút sem þingstörfin eru komin í? Það leysist ekki með því að toga bara fastar í sitthvorn endann og þessi eini og hálfi klukkutími hefur ekki leyst neitt. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)