156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:35]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil biðla til hv. þingmanna að sýna forseta sanngirni þar sem hún hefur staðið sig afskaplega vel. Það er ekki eitthvað sem hún kýs, að við séum hér á sunnudegi, heldur eru þetta viðbrögð við málþófi, ólýðræðislegu málþófi sem gengur út á það að koma í veg fyrir framgang mála á þinginu. Það er undarlegt og ég vil bara vara hv. félaga mína í Sjálfstæðisflokknum við því að taka þátt í þessu, að þeir skuli taka þátt í því að leyfa ekki lýðræðinu að hafa sinn framgang hér í þinginu, taki þátt í svona andlýðræðislegum vinnubrögðum og komi í veg fyrir framgang mála. Og hv. þingmenn í Miðflokknum: Það liggur hérna gott tilboð á borðinu um hvernig megi ljúka þessu máli með sæmd en það er hætt við því ef það verður ekki komin einhver sátt í þetta að þessi umræða (Forseti hringir.) haldi hér áfram og súrni og verði erfiðari og erfiðari fyrir hv. þingmenn.