156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:36]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Hér hefur verið rætt í dag um fundarstjórn forseta þar sem er boðað til fundar á sunnudegi út af því að plan stjórnarflokkanna hefur ekki verið neitt annað en yfirgangur og yfirlæti. Þannig hafa öll vinnubrögð á þessu þingi verið, hvort sem það er áður en þing kom saman þegar hæstv. forsætisráðherra tilkynnir þingmálaskrá áður, gegn þingsköpum, og breytir útsendri ræðu sinni, eða þegar við komum inn í nefndirnar þar sem má ekki breyta málum ef ráðherrann gefur ekki leyfi af því að það kom ekki svoleiðis frá ráðherranum og gestir fá ekki að koma. Ég sem formaður í nefnd hef aldrei neitað gestakomu, aldrei. Þetta snýst um það hvernig verkstjórnin verkstýrir hér, hvort það er með yfirlæti og yfirgangi eða með samtali um og virðingu fyrir því að gera málin betri. (Forseti hringir.) En eitt vil ég segja að lokum: Það er eitt gott við þetta allt saman. Þetta yfirlæti þeirra hefur sett öll þeirra mál í hnút (Forseti hringir.) og fyrir íslenska þjóð er það besta sem getur gerst að þessi mál klárist ekki enda öll vond.