Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson kemur hér upp og talar um ólýðræðislega umræðu, að við leyfum ekki lýðræðinu að hafa framgang, og segir að eitthvert gott tilboð sé í gangi sem ég hef ekki séð fyrir minni hlutann. Þessi sami hv. þingmaður er formaður atvinnuveganefndar. Í dag ætlaði minni hlutinn í atvinnuveganefnd að funda til þess að búa til nefndarálit um veiðigjaldamálið, reyna að koma einhverju skikki á það. Við munum reyndar ekki ná að ljúka því. Við munum boða framhaldsnefndarálit vegna þess að í næstu viku erum við að boða fundi með þeim umsagnaraðilum sem við fengum ekki, með ólýðræðislegum vinnubrögðum meiri hlutans, að fá boðaða til nefndar. Ekki einhvern Jón Jónsson úti í bæ heldur aðila eins og Skattinn, aðila eins og Ragnar Árnason, helsta hagfræðing á þessu sviði í heiminum, Byggðastofnun, hagsmunaaðila vegna þeirra breytinga sem eru boðaðar. Svo talar þessi hv. þingmaður um lýðræðisleg vinnubrögð. Málið um veiðigjöldin (Forseti hringir.) getur augljóslega ekki, virðulegur forseti, farið á dagskrá þingsins á morgun ef það hafa verið einhverjar hugmyndir uppi um það af því að við höfum engan tíma til að geta unnið (Forseti hringir.) sómasamlegt mál. Ég sé að hæstv. forsætisráðherra er mættur í salinn og ég fagna því. (Forseti hringir.) Ég sé að hún er að lesa bók og ég vona að hún sé að lesa Ár drekans eftir Össur Skarphéðinsson þegar hann lýsir vinnubrögðum (Forseti hringir.) þeirrar ríkisstjórnar sem hann sat í, vinstri stjórnar Samfylkingarinnar, undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur, 2009–2013. Hann lýsir vel vinnubrögðunum (Forseti hringir.) og þau eru ekki til eftirbreytni, virðulegur ráðherra.
(Forseti (GrímG): Forseti vill minna hv. þingmenn á að ræðutíminn er ein mínúta undir þessum lið.)