156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:46]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Þetta er nú einhvern veginn að fara eins og mér þótti líklegt við upphaf þessa óvanalega þingfundar, að það væri ekki að teiknast upp sú mynd að lúkning þessa eina máls sem hér er á dagskrá færðist nær í tíma með þessum óvanalega fundi. Ég veit að virðulegur forseti ætlar sér að boða þingflokksformenn til fundar núna fljótlega aftur. Mig langar bara að hvetja virðulegan forseta til þess að gera það núna strax að aflokinni þessari umræðu um fundarstjórn forseta áður en það mál sem kemur á dagskrá kemur hér til efnislegrar umfjöllunar í fyrstu ræðu.