Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Hv. þm. Pawel Bartoszek kom hér upp áðan til að gera tilboð, gera hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar tilboð og fáeinir þingmenn stjórnarinnar hafa svo minnt á þetta tilboð. Ég veit ekki hvort það er rétt að nota það orð yfir tillögu hv. þingmanns. Þetta er a.m.k. ekki tilboð sem ekki er hægt að hafna, því hvert var tilboðið? Jú, það að hv. þingmaður myndi halda ræðu um málið, myndi kveða upp úrskurð sinn yfir umræðunni og svo leyfðist þingmönnum að koma og veita hv. þingmanni andsvar. Þetta var nú öll hugkvæmnin hjá þessari hæstv. ríkisstjórn um hvernig mætti nálgast þá stöðu sem hún er búin að koma sér í með forgangsröðun sinni hér á Alþingi.