156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:15]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Mig langar hér á þessum tímapunkti eftir þetta stutta hlé á þingfundi, klukkan er núna rúmlega korter yfir fjögur, að spyrja hvort einhver lína hafi verið lögð hjá virðulegum forseta og varaforsetum varðandi fyrirkomulag þingfundar dagsins. Hvort við megum gera ráð fyrir, þingmenn, að vera hér til kannski fimm, sjö, níu, ellefu eða inn í nóttina. Það sem ég er að hugsa um í þessu samhengi er svigrúm sem ég hef til að vinna að nefndaráliti vegna veiðigjalda sem ég reikna með að verði fyrsta mál á dagskrá á morgun. Upp á skipulag mála þætti mér vænt um ef virðulegur forseti gæti upplýst svona í grófum dráttum hver sýnin er á áframhaldandi fundarhöld hér í dag án þess að ég sé í neinu á þessum tímapunkti að fara inn í þá sérstöku stöðu að hér sé fundað í dag yfir höfuð.