156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:17]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég spurði hér fyrr í dag út í viðmið, þegar forseti beitir valdi sínu með þessum hætti og sækir viðmið í fyrra stríð. Þá þótti ástæða til að halda þingfund á sunnudegi. Ég spurði hér áðan hvort það væri mat hæstv. ríkisstjórnar og frú forseta að hér væri slíkt mál á ferðinni, að þetta væri ígildi þess að hér væri að brjótast út heimsstyrjöld, hvort það væri þyngdin sem stjórnin legði í bókun 35. Ef svo er þá kemur það á óvart, ekki síst vegna þess að þetta mál er ekki einu sinni í stjórnarsáttmálanum, þannig að það er mjög einkennilegt að upplifa það að þetta mál sem einhvern veginn var bara í felum vikum saman, (Forseti hringir.) frú forseti, vikum saman, er allt í einu orðið málið sem ríkisstjórnin ætlar að láta steyta á.