Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Á leiðinni hingað á þingið rétt eftir hádegi hlustaði ég á umræðuna um fundarstjórn forseta. Þar komu ráðherrar og þingmenn meiri hlutans og fögnuðu því að vinna hér á sunnudegi. Það hljómaði eins og það væri nýlunda fyrir þá að vera í vinnunni á sunnudegi, sem er einkennilegt vegna þess að ég held að flestir þingmenn vinni venjulega á sunnudögum þótt þeir séu ekki hér í þingsal. Það sem mér þótti einkennilegast var að hér komu fyrrverandi forstöðumenn verkalýðshreyfinga og tóku það sérstaklega fram að vinna á sunnudegi væri sérstök fyrir þá. Ég ítreka að mér þótti undarlegt að þeim þætti þetta eitthvað skrýtið og ég gerði ráð fyrir að mögulega sérstaklega þessir tveir menn, annar þeirra held ég að sé á tvöföldum launum og hinn með digran sjóð, væru bara í vinnunni almennt þegar svona er í pottinn búið þegar menn eru á miklum og góðum launum. Ég get bara fullyrt það að stjórnarandstaðan hefur unnið alla sunnudaga og kveinkar sér ekkert undan því en það verður að vera tilefni til.