Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég er að missa töluna á því hversu oft ég hef komið hingað upp til að spyrja forseta eftirfarandi spurninga sem ég ætla, með leyfi forseta, að fá að endurtaka: Hver er staðgengill hæstv. utanríkisráðherra? Hver er staðgengill velferðarráðherra og eru fleiri staðgenglar að störfum fyrir aðra ráðherra því að hér eru ekki margir hæstv. ráðherrar inni í salnum á þessum neyðarfundi. Fyrirgefið, það er enginn í salnum á þessum neyðarfundi, frú forseti.
Einnig spurði ég, í ljósi þess að hér virðast allar hefðir og venjur brotnar: Kemur til greina að funda 17. júní? Ég frábið mér að það komi einhverjar gaslýsingar um það að það séu margir sem vinna 17. júní. Ég vil líka benda á að þeir sem fóru hæst í þeirri umræðu eru ekki í salnum núna. Má ég þá gera ráð fyrir að þeir hv. þingmenn séu ekki lengur í vinnu?