Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég velti því hreinlega fyrir mér eins og staðan er orðin: Af hverju erum við eiginlega að þessu? Nú erum við búin að vera hérna síðan vel fyrir klukkan eitt og það er ekki búin að vera ein einasta ræða hér í því máli sem er á dagskrá. Ég hlýt að spyrja mig, frú forseti, hvort það séu mikil klókindi í samningum að vera hérna langt fram eftir degi og komast í rauninni ekki að því að ræða þó alla vega þau mál sem skipta verulegu máli, og það er ekki bókun 35, svo að ég segi það nú bara hreint út. Fyrir okkur sem erum nýliðar á þingi þá vil ég bara lýsa því yfir að það eru gríðarleg vonbrigði að menn skuli ekki leggja meira á sig við að semja um að koma málum á dagskrá. Það þýðir auðvitað að allir aðilar verða að gefa eftir og það hlýtur að byrja hjá þeim sem hafa valdið til að setja hér á fund.