Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Eins og staðan er núna er einn hv. stjórnarþingmaður hér í hliðarherbergi, annars sjást þeir ekki hér á þessum annasama sunnudegi á þessum mikla neyðarfundi út af máli sem var tilbúið út úr nefnd fyrir um tveimur mánuðum. Ég velti því fyrir mér hvernig þingstörfin væru hér ef virðulegur meiri hluti hefði bara sýnt almenna kurteisi, haft samtal og samvinnu um málin, tekið þau til efnislegrar meðferðar í þingnefndum, fengið gesti, gert það að verkum að þetta væri vel úr garði gert allt saman. Bókun 35 hefði bara verið sett á dagskrá og tíminn nýttur vel þegar málið var komið út úr utanríkismálanefnd tilbúið til umræðu hér. Værum við kannski að ræða einhver önnur mál hér á morgun? Ég held að við hefðum ekki þurft að hafa þennan fund. Þetta snýst allt um vinnubrögð hæstv. ríkisstjórnar og ekkert annað.