Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að hrósa hv. þm. Grími Grímssyni. Hann er hér stöðugt í þingsal fyrir hönd meiri hlutans og gott að sjá að það sé alla vega einhver sem hlustar. En, frú forseti, ég vil minna forseta á það að hér er verið að skrifa söguna, bæði fyrir okkur sem einstaklinga og sem þingmenn. Ég skrapp hér út rétt áðan og andaði að mér fersku lofti og hitti þar hóp ferðamanna. Þeir sáu hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur og mig prúðbúin hér miðað við aðra og spurðu hvað við værum að gera. Við nefndum það að við værum í vinnunni í fyrsta sinn á lýðveldistíma og í annað sinn síðan í fyrra stríði erum við boðuð hér á sunnudegi, og til hvers? Að ræða hér fundarstjórn forseta. Er þetta virðingin sem við erum að reyna að vinna okkur inn hér á háa Alþingi? Við í minni hlutanum höfum ekki dagskrárvaldið. Meiri hlutinn hefur það og boltinn er hjá meiri hlutanum. Þetta er gjörsamlega óþolandi.