Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Eftir rúmlega fimm mánaða stjórnarsetu komu stjórnarþingmenn hér fyrr í dag og töluðu um vinnusemi. Hver er staðan núna? Við erum búin að vinna hérna í þrjá tíma. Hver er staðan? Þeir eru allir horfnir. Hv. þm. Grímur Grímsson situr hér í salnum en enginn annar stjórnarþingmaður, enginn annar ráðherra. Þetta er ágætt fyrir áheyrendur að vita. Og það er talað um vinnusemi.
Eftir fimm mánaða stjórnarsetu er allt komið í skrúfuna hjá stjórninni, allt komið í skrúfuna. Fullt af stórum frumvörpum eru nýkomin fram, risastórum; veiðigjaldafrumvarpið, kílómetragjaldið, strandveiðifrumvarpið, frumvarp um niðurfellingu á nýtingu samsköttunar á milli hjóna. Þetta á allt að afgreiða, helst bara strax. Þetta er auðvitað hrokafull afstaða. Og svo er bókun 35 sett á dagskrá, mál sem er búið að bíða í tvo mánuði eftir að nefndin afgreiddi það og ætlast (Forseti hringir.) til að svona mál sem varðar fullveldi þjóðarinnar, varðar stjórnarskrá þjóðarinnar, sé bara afgreitt hér á augabragði (Forseti hringir.) meðan öll hin málin bíða. Siðaskiptin hin síðari, sem ég kalla svo, að funda hér á sunnudegi, rúmhelgum degi, meðan messa var hérna hinum megin, í húsinu hérna við hliðina, messa þjóðkirkjunnar, kirkju okkar landsmanna í þúsund ár og meira til, (Forseti hringir.) þá á að þinga hér í Alþingishúsinu í fyrsta sinn og engin þjóðarvá í nánd. — Það eru mættir hér fleiri þingmenn. Þarna er kominn einn í viðbót. Það eru komnir tveir úr meiri hlutanum, tveir þingmenn. Vinnusemi.
(Forseti (KÁB): Forseti vill aftur minna hv. þingmenn á að þessi liður í ræðu er ein mínúta en ekki tæpar tvær.)