156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:30]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Mig langar bara að reyna að benda á augljósan hlut sem hefur ekki vakið athygli. Hér er mikið talað um að með þessum umræðum um þetta mál, bókun 35, sé tekinn tími frá þinginu. Þá verðum við auðvitað að skoða hvaða tíma er verið að taka frá þinginu hér. Tíminn sem ríkisstjórnin setti sér sjálf til að koma málum í gegnum þingið er rammaður inn í starfsáætlun Alþingis í upphafi hvers þings. Tíminn sem hefur farið til umræðu um þetta mál innan þess ramma sem ríkisstjórnin setti sér sjálf er ekkert mjög mikill. Fundirnir hér eru að miklu leyti utan þess sem áform voru um að halda, á kvöldin, á sunnudegi, í gær, á laugardegi og þar fram eftir götunum. Þetta dregur fram þá mynd að óstjórnin og skipulagsleysið er allt á ábyrgð ríkisstjórnarinnar, ekki stjórnarandstöðunnar. Meiri hluti ræðna hér segir mér svo hugur um að verði með þeim hætti að þær verði haldnar utan þess ramma sem starfsáætlun setti. (Forseti hringir.) Það er nú allur tíminn sem er verið að taka frá þinginu í raun.