156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:32]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Hvar eru allir þessir hæstv. ráðherrar sem hér rétt áðan voru að státa sig af eigin vinnusemi og virtust skilgreina það þannig að menn væru einfaldlega ekkert að vinna nema þeir væru hér í þinginu að tala? Þeir eru horfnir að því er virðist og hafa ekkert til málanna að leggja. Hæstv. utanríkisráðherra er einhvers staðar í útlöndum að mér skilst og enn höfum við ekki fengið að vita hvaða ráðherra gegnir fyrir hana. Hvaða ráðherra fer með utanríkismál núna? Það hafa ekki borist svör við því. Er það hugsanlega vegna þess að hæstv. forseti einfaldlega veit það ekki? Veit ríkisstjórnin það ekki? Þetta er allt hið undarlegasta mál og bætist við þennan sögulega fund hér á þessum degi. En, frú forseti, ég hafði hugsað mér að ræða annað mál undir þessum lið og mun því þurfa að koma upp aftur til að gera grein fyrir því.