Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Í fréttaskoti sem ég og hv. þm. Sigmar Guðmundsson tókum þátt í á Stöð 2 rétt fyrir helgi vorum við að greina frá því, þingmenn minni hlutans, að okkur þætti ekki taka því að mæta á fundi atvinnuveganefndar af því að þar væri ekkert hlustað á beiðnir okkar og óskir. Þá hneykslaðist þingmaðurinn á því að við ætluðum ekki að mæta í vinnuna og sagði það fáheyrt að mæta ekki í vinnuna. Hann ætti að tala við sitt eigið fólk núna.
Forseti þingsins, forseti allra þingmanna, er að skrifa sig á spjöld sögunnar með sinni framkomu hér og sínum ákvörðunum í dag. Það er vafasamur heiður, virðulegur forseti. Þinglok með miklum ólíkindum. Það er hrópandi reynsluleysi stjórnarflokkanna sem birtist í ólýðræðislegum vinnubrögðum: Ég á þetta. Ég má þetta. Lýðræði gengur svona fyrir sig í einhverjum löndum sem við viljum ekki bera okkur saman við, (Forseti hringir.) þar sem hinu raunverulega lýðræði er kippt úr sambandi eftir því sem stjórnarherrunum þóknast. Við viljum ekki þessi átök. (Forseti hringir.) Við getum komist í gegnum þingið (Forseti hringir.) eins og áður hefur verið. Í gegnum áratugina hefur okkur alltaf auðnast við þinglok að ná einhverri niðurstöðu, ná einhverju samkomulagi. Reynsluleysi (Forseti hringir.) ríkisstjórnarflokkanna og ríkisstjórnarinnar til þess að leiða slíka vinnu, sem augljóslega verður að liggja hjá þeim sem dagskrárvaldið hafa, er í algjöru skötulíki. Það er engin virðing (Forseti hringir.) borin fyrir skoðunum okkar og lýðræðislegu hlutverki okkar í minni hlutanum (Forseti hringir.) og þess vegna er komið sem komið er, virðulegur forseti. Það er leitt.