156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:35]
Horfa

Snorri Másson (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér sífellt um fundarstjórn forseta og ég lýsi því yfir að maður er spenntur, að lokinni þeirri umræðu, að komast í frekari umræðu um bókun 35. Þar er margt órætt. Þar erum við að ræða grundvallarspurningar um fullveldi, um löggjafarvald Alþingis, um stjórnarskrá og sömuleiðis um sögu EES-samningsins sem er umræða sem hefur um margt verið afar fróðleg. Við höfum verið án bókunar 35 í 32 ár þannig að ég sé ekki að það hafi myndast tímahrak við þessar aðstæður sem réttlæti að gripið sé til þeirra örþrifaráða að halda þingfund á sunnudegi. En ég ætla ekki að hafa neina sérstaka skoðun á því, við mætum bara til fundar þegar hann er boðaður og ræðum þau mál sem eru á dagskrá. Ef til vill lýsir þetta því að hið eina sanna neyðarástand hlýtur að vera innan ríkisstjórnarinnar sem getur mögulega ekki komið sér saman innbyrðis um það hvernig eigi að ljúka þessu þingi vegna þess að það strandar ekki á okkur. (Forseti hringir.) Okkar sjónarmið eru alveg ljós en einhvers staðar strandar þetta.