Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Sú mynd sem hér er að teiknast upp verður æ skýrari. Nú skal níðst á þingsköpum. Það er ekki bara verið að níðast á bjöllunni af og til, það er líka verið að níðast á þingsköpum. Til hvers og af hverju? Það er von að maður fái þessa spurningu utan úr raunveruleikanum, inn í þetta leikrit sem komið er af stað. Jú, það er til að reyna að teikna upp þá mynd að einhverjir ákveðnir flokkar eða flokkur séu að reyna að stoppa mál þegar raunveruleikinn er að segja okkur allt aðra sögu. Sú saga er að hæstv. ríkisstjórn er að láta steyta á bókun 35 sem ég hélt að væri bara hjartans mál okkar Miðflokksmanna en virðist núna vera orðið aðalmál ríkisstjórnarinnar og kemst þannig ekki í þau mál sem hún kallar, og ég get tekið undir það, mörg af stóru málunum sínum. (Forseti hringir.) Það varðar réttindi fatlaðs fólks til að mynda og skilaboðin sem hæstv. ríkisstjórn er að senda núna eru: (Forseti hringir.) Þið þolið bið því það er okkur meira virði að sýna Miðflokknum að við getum beygt hann, að sýna Sjálfstæðisflokknum að við getum níðst á hefðum (Forseti hringir.) og í raun þingheimi öllum, að við getum níðst á þingsköpum. (Forseti hringir.) Nú er verið að níðast á bjöllunni.
(Forseti (KÁB): Ræðutíma þingmannsins er lokið. )
Það hefur verið níðst á meiru en ræðutíma þingmanna, m.a. bjöllunni og pontunni og hefðum og öllu mögulegu, frú forseti.