Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Það er ekki nóg með að hæstv. ráðherrar hafi komið hér hver á eftir öðrum og státað sig af eigin vinnusemi og gert því skóna að aðra skorti hana og látið sig svo um leið og því var lokið hverfa. Hér hefur borið á því í þessu þingi að undanförnu að þingmönnum hafi beinlínis verið meinað að vinna vinnuna sína. Hér er ég að vísa til nefndarstarfa, til að mynda í hv. atvinnuveganefnd þar sem þingmenn máttu ekki fá gesti á fund nefndarinnar, þá gesti sem líklega voru allra mikilvægastir til að hægt væri að leggja mat á það sem þar var til umræðu. Nennti hv. formaður atvinnuveganefndar ekki að fá gestina? Nennti hann ekki að vinna og reif þess í stað málið út úr nefnd óklárað? Ég held, frú forseti, að þessi stjórnarmeirihluti þurfi að fara að líta í eigin barm og skoða sín vinnubrögð.