Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Við fundum hér á sunnudegi í einu elsta þjóðþingi heims. Hér hafa myndast ýmsar venjur, sett þingsköp og skapast hefðir og það er líka komin mikil reynsla á það hvernig þingstörfin ganga fyrir sig og hvernig þau ganga sem best. Það er örugglega eitthvað sem við getum lagað og bætt frá því sem er í dag en ég held að grunnvandamálið hér, virðulegi forseti, sé einmitt hvernig haldið er á málum. Það hefur eiginlega verið girt fyrir vinnu í nefndunum þar sem mesta vinnan hefði átt að fara fram, það er ekki á hana treystandi þannig að umræðan hefur færst miklu meira hingað inn í þingsalinn. Það hefur verið eina vörnin til að fjalla um málin. En það eru þó mál á þessu þingi sem hafa fengið eðlilega umræðu í nefndunum, hafa líka verið vel undirbúin af því að mikið af þeim eru mál sem voru undirbúin af fyrri ríkisstjórn og annað. Þau hafa klárast. (Forseti hringir.) Við höfum klárað stór mál hér, meira að segja umfjöllun um frumvarp um hvernig ætti að selja Íslandsbanka og frumvarp um hvernig ætti að gera upp Íbúðalánasjóð. (Forseti hringir.) Mörg stór mál hafa farið hér í gegn (Forseti hringir.) enda fengu þau eðlilega umræðu og eðlilega vinnu hér og þá er ekkert því til fyrirstöðu að ræða málin og afgreiða þau.