156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:42]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Við höfum verið að ræða bókun 35 hér að undanförnu sem varðar lagasetningarvald Alþingis, sem varðar fullveldi þjóðarinnar, sem varðar stjórnarskrá okkar. Ég hef auðvitað áhyggjur af því þegar forseti ákveður að efna til siðaskipta í landinu með því að kalla saman þingfund á sunnudegi, rúmhelgum degi. Meðan messur fara fram í kirkjum eða aðrar kirkjulegar athafnir hér í nágrenninu þá höfum við verið hér, held ég, í næstum sex klukkutíma og ég held að við höfum ekki náð kannski nema hálftíma í umræðu um bókun 35 og á ég þar eftir mjög margt ósagt. Ég hef áhyggjur af því og það eru ekki nema sjö klukkutímar eftir af þessum sunnudegi. Ég hef eytt fimm mínútum kannski í fundarstjórn þannig að ég hef ekki verið að taka tíma frá bókun 35. En þetta er bara mál sem skiptir afar miklu máli. Og talandi um að þessi ríkisstjórn ætli að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu eftir tvö ár um það hvort þeir (Forseti hringir.) ætli að fara í viðræður eða ekki, sem er hið hlægilegasta mál, frú forseti, þá held ég að við ættum að nýta tímann betur (Forseti hringir.) og fara þá frekar og efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35.

(Forseti (KÁB): Ræðutíma þingmannsins er lokið.)

Fyrirgefðu, frú forseti. Við ættum frekar að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mikilvæga mál.